Skráning í bikarkeppnina Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Pistill frá EM í dag

miðvikudagur, 20. júní 2012

Spilamennskan hjá íslenska liðinu var slæm í dag, stór töp fyrir Ítölum og Írum. Írarnir á heimavelli og fjöldi manns að fylgjast með þeim, það virtist gefa þeim aukinn kraft, en að sama skapi sáum við aldrei til sólar. Það var þungskýjað hjá hópnum okkar eftir leikina,og nú þarf að hreinsa hugann fyrir átök morgundagsins, Þýskaland fyrst, síðan Ísrael og Grikkland. Það verður langur göngutúr á eftir, Björn er búinn að tilkynna liðið á móti Þjóðverjum: Jón og Þorlákur, Aðalsteinn og Bjarni.Nú þarf að bretta upp ermar, við getum ekki átt tvo slæma daga í röð.
kveðja frá Dublin Jafet