Í opna flokknum er Ísland í sjötta sæti eftir góða sigra á Portúgal og Skotlandi í dag. Er Ísland með 284.18 stig eða 11.84 að meðaltali. Í fyrramálið er spilað gegn Ungverjalandi sem ennþá eru að vonast eftir að komast í eitt af átta sætunum sem gefa rétt á Bermuda bowl.
Seniora flokkur hefur staðið sig mjög vel og eru í áttunda sæti sem gefur rétt á heimsmeistaramótið á næsta ári. Eru Seniorar búnir að spila við flestar af efstu þjóðunum svo vonandi bæta þeir bara í. Virkilega vel gert.
Í kvenna flokki hefur verið erfitt á mótinu, en fer í reynslubankann og mun nýtast okkur í framtíðinni.