Fréttir
Föstudagskvöld BR: Guðmundur og Kjartan unnu með 63%
Guðmundur Snorrason og Kjartan Ásmundsson unnu fyrsta föstudagskvöld BR með 63% skor. Í 2. sæti voru Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson me 58,7% og í 3ja sæti voru Bergur Reynisson og Stefán Stefánsson með 55,9%.
Fstudagsbridge Sumla
kv�ld, f�studaginn 29. n�vember �tlar Bridgef�lag Reykjav�kur a� vera me� eins kv�lds tv�menning � S��um�lanum og hefst spilamennska kl.19 og ef menn eru � miklu spilaskapi ver�ur kannski sett upp sveitakeppni � eftir.
Hjördís jók forystuna aftur í Kópavogi
Eftir tíu umferðir af þrettán í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs hefur sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur aukið við forskotið aftur og hefur nú 21 stig á næstu sveit.
Bridgefélag Selfoss: Kristján og Gísli efstir eftir 3 kvöld af 4
Kristján og Gísli eru enn eftstir eftir 3 kvöld af 4 í Sigfúsarmótinu. Leiða þeir mótið með þægilega forystu á næstu pör. Mótinu lýkur fimmtudaginn 5. desember.
Jólamót "Við höfnina" á Dalvík 6.des
Föstudaginn 6.desember verður haldið tvímenningsmót á veitingastaðnum Við höfnina hjá Gústa vert á Dalvík. Þetta verður mjög skemmtilegt mót ef það verður í líkingu við það síðasta sem þar var haldið.
Rangæingar -- "Nú er ég kátur nafni minn"!
Sl. þriðjudagskvöld var leikin 3. umferð í BUTLER-tvímenningi félagsins. Sundmaðurinn ógurlegi og "nafni minn" voru góðir, eins og svo oft áður.
AKureyrarmót í tvímenningi 2.kvöld
Hörð barátta er í Akureyrarmótinu í tvímenning en annað kvöldið unnu naumlega Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson rétt á unan Birni Þorlákssyni og Jónasi Róbertssyni.
Hjördís með 20-0 sigur í fyrstu umferð.
Fyrstu tveimur umferðunum í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er lokið og náði sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur 20-0 sigri ein sveita í fyrstu umferð og er í efsta sæti.
Rangæingar -- Sundmaðurinn á flugsundi
Sl. þriðjudagskvöld mættu 10 pör til leiks á Heimaland og spiluðu 28 spil í 7 umferðum, Monrad. Sundmaðurinn ógurlegi Magnús Halldórsson hefur farið mikinn undanfarið og er kominn á toppinn í Meistarakeppni félagsins eftir að þeir félagar, Magnús og Sigurjón Pálsson, deildu 1. sætinu í gær með bankastjórunum, Torfa og Sigurði, á 57,6% skori.
Jón og Sigurbjörn eru með forystu í bötler tvímenningi BR
En forystan er naum. Hún getur horfið í einu spili. Staðan er... 1. Jón Baldursson - Sigurbjörn Haraldsson = 59 2. Friðjón Þórhallsson - Hrólfur Hjaltason = 50 3. Kjartan Ásmundsson - Stefán Jóhannsson = 46 .
BH: Sveit Gunnlaugs Sævarssonar vann 2ja kvölda Hraðsveitakeppni
Sveit Gunnlaugs Sævarssonar vann 2ja kvölda Hraðsveitakeppni BH með +148 impa. Þeir sýndu mikinn stöðugleika og skoruðu +74 bæði kvöldin. Með Gunnlaugi spiluðu Kristján Már Gunnarsson, Sigtryggur Sigurðsson og Friðjón Þórhallsson.
Hnífjafnt á Suðurnesjum
Kvöld tvö af þremur í hausttvímenning á Suðurnesjum var æsispennandi allt fram í lokaumferð. Kvöldið endaði með að tvö pör voru jöfn en Garðar Garðarsson og Gunnar Guðbjörnsson enduðu fyrir ofan þá Sigurjón og Odd, en bæði pör fengu 65,7% skor.
Briddsfélag Selfoss
Fyrsta kvöldið af þremur í butlertvímenning hófst fimmtudaginn 24. okt með þátttöku 14 para. Spilað var á nýjum stað og virtist nýja staðsetningin fara vel í þá Ólaf Steinason og Þröst Árnason því þeir eru með nokkuð þægilega forystu í mótinu.
Eiður og Júlíus unnu SuperSub-impamótið
Kristján Snorrason og Ásmundur Örnólfsson náðu besta skori kvöldsins á lokakvöldi SuperSub-impmótsins sem var spilað nú í kvöld. Eiður Mar Júlíusson og Eðvarð Hallgrímsson, sem leysti Júlís Snorrason af, urðu í þriðja sæt sem dugði þeim til öruggs sigurs í heildarkeppninni.
Hraðsveitakeppni Gámaþjónustu Norðurlands
Þá er hafið næsta mót hjá B.A. með þáttöku 7 sveita.
Bridgefélag Selfoss: Úrslit úr aðalfundartvímenningnum
Föstudaginn 27. september sl. var haldinn aðalfundur Bridgefélags Selfoss. Er skemst frá því að segja að stjórnin var öll endurkjörin, og skipa því áfram þeir Garðar Garðarsson formaður, Kristján Már Gunnnarsson gjaldkeri, Guðmundur Þór Gunnarsson ritari, Björn Snorrason varaformaður og þeir Brynjólfur Gestsson og Ríkharður Sverrisson meðstjórnendur.
Þórir og Björn með nauma forystu í Kópavogi
Björn Halldórsson og Þórir Sigursteinsson eru með nauma forystu eftir tvö kvöld af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Í öðru sæti eru feðgarnir Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson og Sigruður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson eru þriðju efir að hafa náð 63,1% skori í kvöld.
Hausttvímenningur BK heldur áfram; Opið fyrir pör sem vilja koma inn
Þriggja kvölda Hausttímenningur Bridgefélags Kópavogs heldur áfram í kvöld, fimmtudagsköld. Þar sem tvö bestu kvöldin gilda til verðlauna þá er opið fyrir ný pör að koma inn og spila síðustu tvö kvöldin.
BH: Gunnlaugur og Högni efstir með 64,4%
Gunnlaugur Óskarsson og Högni Friðþjófsson unnu seinni einskvölds upphitunartvímening félagsins. Þeir enduðu með 64,4% skor sem var tæp 5% ofar en þær Harpa Fold og Svala sem urðu í 2. sæti.
Bf eldri borgara í Hafnarfirði: Úrslit 24.9 og myndir á facebook
Hægt er að sjá úrslit og öll spil frá spilakvöldum Bridgefélags eldri borgára í Hafnarfirði á heimasíðu þeirra: Heimasíða BFEH Þar má einnig sjá link á facebook með myndum sem Aðalsteinn Jörgensen tók af spilamennsku félagsins.