Skráning í bikarkeppnina Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 28. maí 2013

B.A.: Topp 16 og sumarbridge

Topp 16 meistarinn �ri� 2013 er �ttar I. Oddsson eftir har�a bar�ttu vi� V��i J�nsson. Heildarsta�an Sumarbridge er � fullum gangi og h�r m� sj� �rslitin en s��ast unnu Reynir og Fr�mann eftir har�a bar�ttu vi� Valmar og P�tur Gu�j�ns.

fimmtudagur, 23. maí 2013

Sumarbridge B.A.

�� er Sumarbridge hafi� og �rslit fyrsta kv�ldi� m� sj� h�r

miðvikudagur, 22. maí 2013

Sumarbridge: Leifur og Guðmundur unnu með 65,2%

Leifur Aðalsteinsson og Guðmundur Ágústsson unnu 32 para tvímenning með 65,2% skor.  Jafnir í 2. sæti voru Sigurður Steingrímsson og Kristinn Kristinsson og Brynjar Jónsson og Ingvar Hilmarsson með 56,6%.

miðvikudagur, 22. maí 2013

Landsmót UMFÍ 50+

  Kæru félagar  Helgina 7. - 9. júní verður 3. Landsmót UMFÍ 50 + haldið í Vík í Mýrdal.   Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti J og senda þessar upplýsingar á sem flesta.

þriðjudagur, 21. maí 2013

Aðalfundur Bridgefélags Kópavogs 24 maí

Aðalfundur Bridgefélags Kópavogs verður haldinn föstudaginn 24 maí kl. 20:00 að Fjallalind 7, heima hjá Þorsteini Berg.

mánudagur, 20. maí 2013

Sumarbridge: Guðlaugur og Baldur unnu fyrsta mótið!

Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson unnu fyrsta spilakvöld Sumarbridge 2013 með 62,2% skor.  Í 2. sæti voru Erla Sigurjónsdóttir og Guðni Ingvarsson með 57,9% og í 3ja sæti Jón Hákon Jónsson og Guðmundur Skúlason með 56,7%.

föstudagur, 17. maí 2013

Heimaeinmenningur Frímanns

Bridgefélag Akureyrar var að fá afhentar Bridgemate tölvur frá BSÍ og upplagt var að taka prufukeyrslu með 8 manna heimaeinmenning. Eftir kerfið var komið í gang með hjálp Svenna þá gekk mótið smurt og þeir nafnar urðu jafnir og efstir eftir harða baráttu og mörg sveifluspil.

föstudagur, 17. maí 2013

Miðvikudagsklúbburinn: Eðvarð og Magnús unnu síðasta kvöldið!

Eðvarð Hallgrímsson og Magnús Sverrisson unnu síðasta spilakvöld Miðvikudagsklúbbsins með 59,8% skor. Halldór Þorvaldsson og Baldur Bjartmarsson enduðu í 2. sæti með 58,8% og í 3ja sæti voru Anna Jónsdóttir og Sigurrós Sigurðardóttir.

þriðjudagur, 30. apríl 2013

Impamót B.A., lokastaðan

Eftir 3ja kvöld urðu öruggir sigurvegarar þeir Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson en með þeim unnu sveitakeppnina Víðir Jónsson, Jón Sverrisson og Stefán Sveinbjörnsson.

þriðjudagur, 30. apríl 2013

Jón og Þorlákur með sjö toppa forystu í Sushi Samba tvímenningi BR

Að þrem kvöldum af fjórum lokið, eru Jón Baldursson og Þorlákur með yfirburðaforystu.

þriðjudagur, 30. apríl 2013

Síðasta spilakvöld vetrarins í Kópavogi

Síðasta spilakvöld vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs verður fimmtudaginn 02 maí kl. 19:00. Þá verður spilaður Howell eða Mitchell tvímenningur sem fer eftir borðafjölda.

mánudagur, 29. apríl 2013

Árshátíð bridgekvenna 4.maí 2013

Sjá auglýsingu hér

mánudagur, 29. apríl 2013

ATH. Ekki er spilað í BH í kvöld Sjáumst hress í haust

laugardagur, 27. apríl 2013

Davíðsmót í Dölum vestur

Hið árlega Davíðsmót fór fram í Tjarnarlundi í Saurbæ í dag. Sautján pör mættu til leiks og spiluðu sjö umferðir eftir monrad, samtals 28 spil.

föstudagur, 26. apríl 2013

Rangæingar -- Lokakvöld....og lagið var tekið.....

Síðasta vetrardag öxluðu Rangæingar skinn sín og skunduðu á Flúðir, hvar verkefnið var að ljúka vetrarstarfinu.  Þar snæddum við dýrindis kvöldverð á Icelandair hótelinu.

fimmtudagur, 25. apríl 2013

Kristján og Ásmundur rétt mörðu sigur

Þriggja kvölda Moradtvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld með afar naumum sigri þeirra Kristjáns Snorrasonar og Ásmundar Örnólfssonar.

föstudagur, 29. mars 2013

Páskamót BH 2013: Bjarni og Aðalsteinn sigurvegarar!

Bjarni Einarsson og Aðalsteinn Jörgensen skutust á toppinn á réttu augnabliki og tryggðu sér sigur í árlegu Páskamóti BH 2013, Þeir enduðu með 57,6%.

fimmtudagur, 28. mars 2013

BH: Magnús og Halldór unnu páskabutlerinn

Magnús Sverrisson og Halldór Þorvaldsson unnu tveggja kvölda Páskabutler BH.  Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson voru í 2. sæti og í 3ja sæti voru Pétur Sigurðsson og Ólafur Þór Jóhannsson.

fimmtudagur, 28. mars 2013

Miðvikudagsklúbburinn: Kristján og Baldur unnu sér inn páskaegg!

Kristján Snorrason og Baldur Bjartmarsson unnu sér inn sitthvort risa páskeggið á spilakvöldi hjá Miðvikudagsklúbbnum.  Í 2. sæti var Runnalaufs-tvíeykið Þórður Þórðarson og Þorvaldur Pálmason og 3ja sætið varð hlutskipti Þorgerðar Jónsdóttur og Aðalsteins Jörgensen.

miðvikudagur, 27. mars 2013

Rangæingar -- Pattaralegur peyji og Eyji...alla vega eftir páska

Þann 26. mars sl. var spilaður páskabarómeter hjá Rangæingum (Krappabarómeterinn) en Krappi ehf. gefur páskaeggin sem veitt voru verðugum í verðlaun.