Fréttir
Miðvikudagsklúbburinn: Ingvar og Brynjar efstir í UNICEF góðgerðarkvöldi
Ingvar Hilmarsson og Brynjar Jónsson urðu efstir með 62,7% í Alheims-góðgerðar bridgekvöldi hjá Miðvikudagsklúbbnum og heiminum. Inda Hrönn og Svala Pálsdóttir voru í 2. með 61,0%.
Janúarbötler BR
Í kvöld hófst þriggja kvölda bötler með þátttöku 32 para hjá BR.Guðmundur Sveinn Hermannsson og Helgi Jóhannsson leiða eftir 10 umferðir af 31.
Alheimstvímenningur-UNICEF
Miðvikudaginn 23.janúar verður Mivikudagsklúbburinn og BSÍ með Evróputvímenning og rennur allur ágóði til UNICEF. Hvetjum við spilara til að mæta og styrkja þetta góða málefni.
Reykjavíkumótinu í sveitkakeppni lokið
Sveit Enorma ; Sigfús Örn Árnason, Friðjón Þórhallsson, Hermann Lárusson, Þröstur Ingimarsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr. og Jón Ingþórsson) unnu mótið nokkuð örugglega.
BRIDGEHÁTÍÐ 2008
Bridgehátíð 2008 verður haldin dagana 14-17. febrúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Skráning er þegar hafin og er í fullum gangi, hægt er að skrá sig síma 587-9360 og hér í tvímenninginn 14.-15.feb og sveitakeppnina 16.-17.feb Sjá skráningarlista í tvímenninginn og sveitakeppnina NÝ HEIMASÍÐA ICELANDAIR OPEN Stjörnustríð verður miðvikudagskvöldið 13.febrúar að Hótel Loftleiðum.
Bridgefélag Reykjavíkur að fara af stað
Nú klárast Reykjavíkurmótið á laugardag, 19.janúar og fyrsta spilakvöld BR á nýju ári verður þriðjudaginn 22.janúar. Fyrsta mótið er 3ja kvölda bötlertvímenningur en þetta keppnisform hefur verið afar vinsælt í BR undanfarin ár.
9.jan
4. fundur stjórnar BSÍ haldinn miðvikud. 9. jan. 2008 Mættir: Þorsteinn Berg, Hrafnhildur Skúladóttir, Ólöf Þorsteinsdóttir, Páll Þórsson og Sveinn R.
Jólamót Bridgefélags Hafnafjarðar
Ísak Örn Sigurðsson on Gunnlaugur Karlsson unnu jólamót Bridgefélags Hafnafjarðar Sjá lokastöðu
KEA-hangikjötstvímenningur
Síðasta spilakvöld Bridgefélags Akureyrar fyrir jól var að venju eins kvölds tvímenningur með KEA-hangikjöt og reyktan magál í verðlaun. Í upphafi var afmælissöngurinn sunginn af krafti fyrir Frímann Stefáns sem bauð upp á jólasmábrauð í tilefni dagsins.
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar
Pétur og Jónas Akureyrarmeistarar
Akureyrarmótinu í tvímenning lauk hjá Bridgefélagi Akureyrar síðasta þriðjudag. Á lokasprettinum höfðu Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson betur í baráttunni um titilinn við þá Gylfa Pálsson og Helga Steinsson, sem efstir voru þegar spilamennska hófst.
Cavendish - tvímenning BR lokið
Ómar Freyr Ómarsson og Örlygur Már Örlygsson unnu Cavendish tvímenning BR sem lauk þriðjudaginn 11.desember. Gunnlaugur Sævarsson og Runólfur Jónsson skoruðu grimmt síðasta kvöldið og voru nálægt því að skjótast á toppinn1. Ómar Freyr Ómarsson - Örlygur Már Örlygsson 14522. Gunnlaugur Sævarsson - Runólfur Jónsson 13023. Gísli Steingrímsson - Sveinn Þorvaldsson 1080 4. Jónas P.
11.des
3. fundur nýrrar stjórnar BSÍ haldinn þriðjud. 11. des. 2007 Mættir Þorsteinn Berg, Garðar Garðarsson, Hrafnhildur Skúladóttir, Júlíus Sigurjónsson, Ómar Olgeirsson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Páll Þórsson og Sveinn R.
Ísl.mót í Butler: Jón og Þorlákur unnu annað árið í röð!
Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson byrjuðu mótið ekki vel því þeir voru neðstir eftir 1. umferð. Þeir bitu í skjaldarrendurnar og voru komnir á toppinn eftir 5 umferðir.
Bridgefélag Akureyrar
Miðvikudagskúbburinn: Kristín Óskarsdóttir og Lilja Kristjánsdóttir efstar!
Öll úrslit og upplýsingar á heimasíðu Miðvikudagsklúbbsins
BH: Sveit Guðlaugs Bessasonar leiðir Aðalsveitakeppnina eftir 1 kvöld!
Sveit Guðlaugs Bessasonar er efst eftir 2 umferðir af 9 í Aðalsveitakeppni BH. Næsta kvöld eru spilaðar umferðir 3 og 4.
Akureyrarmót í tvímenningi
Pétur og Jónas á toppinn Að hálfnuðu móti hefur röð efstu para breyst nokkuð eftir sviftingar síðasta spilakvölds. Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson skoruðu mest og náðu efsta sætinu af Helga Steinssyni og Gylfa Pálssyni.
Miðvikudagsklúbburinn: Ásdís Matthíasdóttir og Þórey Eiríksdóttir efstar með 59.9%
Ásdís Matthíasdóttir og Þórey Eiríksdóttir efstar með 59,9% Í 2. sæti voru Inda Hrönn Björnsdóttir og Svala Pálsdóttir með 55.2% og í 3. sæti Eggert Bergsson og Kolbrún Guðveigsdótti Efsta parið fékk flottar ostakörfur frá Osta og smjörsölunni 2.
Bf. Hafnarfjarðar: Sveit Indu með öruggan sigur!!
Sveit Indu sigraði Hraðsveitakeppni BH með +109. Sveit Guðlaugs Sveit Guðlaugs Sveinsson var í 2. sæti með +23 og sveit Sigurðar Sigurjónsson í 3.sæti með +17Í sveit Indu spiluðu: Inda Hrönn Björnsdóttir, Grímur Kristinsson, Jóhann Sigurðason og Gabríel GíslasonÖll úrslit hægt að nálgast á heimasíðu BH Næsta keppni félagsins er Aðalsveitakeppni.