Skráing á Reykjavik Bridgefestival 16 liða úrslit í bikar Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir

fimmtudagur, 1. júní 2006

Sumarbridge: Snorri og Ingólfur leiddu allt kvöldið og unnu!!

Snorri Sturluson og Ingólfur Hlynsson leiddu allt kvöldið í Sumarbridge og stóðu uppi sem sigurvegarar með +37 sem jafngildir 59.4% skori. Næstar voru Inga Lára Guðmundsdóttir og Unnur Sveinsdóttir.

miðvikudagur, 31. maí 2006

Sumar loksins komið á Akureyri

Sumar loksins komið Hér á Akureyri er komið sumar og snjór óðum að hverfa úr görðum. En sumar þýðir auðvitað líka að B.A. spilar á þriðjudögum kl 19:30 og 23.maí urðu efstir: 1. Reynir Helgason - Björn Þorláksson +8 2. Gissur Gissurarson - Viggó Reisenhus +5 3. Stefán Vilhjálmsson - Guðmundur V.

þriðjudagur, 23. maí 2006

Ómar Olgeirsson og Rúnar Gunnarsson með RISAskor í Sumarbridge!!

Rúnar Gunnarsson og Ómar Olgeirsson byrjuðu Sumarbridge 2006 með glæsilegu skori, 69,6%. Þetta er með hærri skorum sem hefur náðast þegar spilaður hefur verið Monrad Barómeter.

mánudagur, 22. maí 2006

Sumarbridge

Sumarbridge mun ver�a �risvar � viku � sumar, m�nudags-, mi�vikudags- og f�studagskv�ld og hefst alltaf klukkan 19:00. Spilaform ver�ur �vallt monrad bar�meter me� forgefnum spilum og �forma� a� nota oftast Bridgemate t�lvurnar vi� �treikning.

mánudagur, 22. maí 2006

Glæstur sigur Reykvíkinga í Kjördæmamótinu

Reykvíkingar unnu glæstan sigur í Kjördæmamótinu sem fram fór á Akureyri um síðustu helgi, höfðu 25 stiga forystu á N-Eystra þegar up var staðið. Í ár voru Færyeingar með í fyrsta sinn, en þeir hafa sýnt áhuga á að vera þátttakendur í þessari skemmtilegu keppni á næstu árum.

föstudagur, 19. maí 2006

Bikarkeppni Norðurlanda

Bikarmeistarar síðasta árs taka nú um helgina þátt í móti í Rottneros. Etja þar kappi bikarmeistarar allra Norðurlanda. Fyrir Íslands hönd spila Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson.

föstudagur, 19. maí 2006

Skráning í bikarkeppni BSÍ hafin

Skráning er hafin í bikarkeppni Bridgesambands Íslands og er hægt að skrá sig hér. Dregið verður í fyrstu umferðina á kjördæmamótinu á Akureyri helgina 20.-21. maí.

miðvikudagur, 17. maí 2006

Bridgefélag Reykjavíkur - Einmenningur og bronsstigauppgjör

Einmenningsmót BR fyrir bronsstigahæstu spilara BR í vetur fór fram þriðjudaginn 16.maí. Veglegt gjafabréf frá Heimsferðum fyrir sigurvegarann!! Einnig voru veitt verðlaun fyrir stigahæsta spilara vetrarins, efstu konuna og yngri spilarann.

þriðjudagur, 16. maí 2006

Jón Stefánsson og Magnús Sverrisson unnu lokakvöld Mánudagsklúbbsins

Jón Stefánsson og Mangús Sverrisson skutust í efsta sætið í lokaumferðinni og unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Lauga-Ás. Ísak Örn Sigurðsson og Halldóra Magnúsdóttir voru í 2. og fengu þau gjafakörfu frá SS sem og Rúnar Gunnarsson og Hermann Friðriksson sem voru dregnir út af handahófi.

mánudagur, 15. maí 2006

15.maí 2006

Stjórnarfundur Bridgesambands Íslands 7. fundur var haldinn mánudaginn 15. maí klukkan 17:30 – 19.15 Mættir: Frímann Stefánsson, Guðmundur Baldursson, Halldóra Magnúsdóttir, Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Sigurðsson, Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson, Páll Þórsson og Sveinn Eiríksson.

laugardagur, 13. maí 2006

LOKASTAÐA EFSTU PARA Í PARATVÍMENNINGNUM

Að loknum 29 í paratvímenningnum enduðu Hjördís Sigurjónsdóttir og Kristján Blöndal í efsta sæti með 58,7% skor en staða efstu para varð annars þannig.

þriðjudagur, 9. maí 2006

Rúnar og Hermann skutust á toppinn í síðustu umferð!

Rúnar Gunnarsson og Hermann Friðriksson toppuðu á réttum tíma í Mánudagsklúbbnum og unnu sér inn gjafakörfu frá SS. Þeir enduðu 2 stigum fyrir ofan Óttar og Ara með +26 sem jafngildir 59.3% skori.

föstudagur, 5. maí 2006

Íslandsmót í paratvímenningi

Hið vinsæla Íslandsmót í paratvímenningi verður haldið helgina 13.-14. maí í húsnæði Bridgesambands Íslands að Síðumúla 37. Keppnisstjóri verður Sigurbjörn Haraldsson.

þriðjudagur, 2. maí 2006

Söfnun fyrir Arnar Geir Hinriksson

Stofnaður hefur verið reikningur til söfnunar fyrir Arnar Geir Hinriksson, bridgespilara frá Ísafirði, sem varð fyrir því óláni að hryggbrotna á skíðum um páskahelgina og lamast af þeim sökum.

mánudagur, 1. maí 2006

Íslandsmótið í tvímenningi 2006

Íslandsmótið í tvímenningi fór fram um helgina og lauk í dag.48 pör spiluðu á laugardag og sunnudag og 24 efstu spiluðu svo til úrslita á sunnudag og mánudag.

föstudagur, 28. apríl 2006

Kjördæmamót 2006

Kjördæmamótið 2006 verður haldið á Akureyri 20.-21.maí næstkomandi. Spilað verður í nýjum sal Brekkuskóla, Laugargötu (við hliðina á Sundlaug Akureyrar).

föstudagur, 28. apríl 2006

Kjördæmamót 2006

Kjördæmamótið 2006 verður haldið á Akureyri 20.-21.maí næstkomandi. Spilað verður í nýjum sal Brekkuskóla, Laugargötu (við hliðina á Sundlaug Akureyrar).

þriðjudagur, 25. apríl 2006

Vetrarstarfi BFH lýkur!

þriðjudagur, 25. apríl 2006

Þóranna og Ragna efstar í Mánudagsklúbbnum!

Þóranna Pálsdóttir og Ragna Briem voru funheitar eftir Landsliðkeppni kvenna og unnu spilakvöld Mánudagsklúbbsins 24. apríl með glæsilegu skori, 64,1%.

laugardagur, 22. apríl 2006

Landsliðskeppni kvenna

Landsliðskeppni kvenna fór fram nú um helgina. Tvær efstu sveitirnar spilar síðar úrslitaleik og sveitin sem sigrar verður kvennalandslið Íslands á Evrópumótinu í Póllandi í ágúst.