Skráning á Reykjavik Bridgefestival 16 liða úrslit í bikar Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir

þriðjudagur, 27. febrúar 2018

Kristján Snorra og Ólafur Sigmars efstir í BR

Annað kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Kristján Snorrason og Ólafur Sigmarsson töpuðu efsta sætinu um tíma en náðu því aftur í síðustu setunni.

mánudagur, 26. febrúar 2018

Vestri vann undankeppnina en Bingi og feðgarnir eru Reykjanesmeistarar

Reykjanesmótið í sveitakeppni var haldið í Hafnarfirði um helgina. Eftir harða keppni stóð sveit Vestra uppi sem sigurvegari í undankeppni Íslandsmótsins en Bingi og feðgarnir eru hinsvegar Reykjanesmeistarar þar sem þeir urðu efsta sveitin sem er skipuð meirihluta spilara í félögum á svæðinu.

föstudagur, 23. febrúar 2018

Briddsfélag Selfoss

Þegar þremur umferðum af fimm er lokið í aðalsveitakeppninn, hafa menn Billa tekið forystuna, þó er naumt á milli sveita og úrslitin hvergi nærri ráðin.

föstudagur, 23. febrúar 2018

Lederer mótið í London

Íslendingar keppa á Lederer mótinu í London nú um helgina og höfum við ekki verið með síðan 1992 en þá unnu okkar menn mótið Þeir fjórir sem spila nú um helgina eru Ómar Olgeirsson - Ragnar Magnússon Haukur Ingason  - Þorlákur Jónsson Hægt verður að fylgjast með mótinu hér Skor og fleira sjá hér

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Björk og Jón eru Kópavogsmeistarar í tvímenningi

Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld. Eftir æsispennandi keppni stóðu Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson uppi sem sigurvegarar með aðeins 0,9 stigum meira en þeir Jón Þorvarðarson og Þórir Sigursteinsson.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Rangæingar -- Blásarasveitin

Sl. þriðjudag lauk sveitakeppni okkar Rangæinga.  Saxófónbræður luku leik með sóma og sann, þó formaðurinn skipti sér út úr byrjunarliðinu og stillti upp litlum þverflautuleikara frá Selfossi sem djúpum miðjumanni í síðasta leik.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Reykjanesmót í sveitakeppni

Reykjanesmót í sveitakeppni verður haldið helgina 24-25 febrúar að Flatahrauni 3 Hafnarfirði Byrjað verður að spila kl.10 á laugardagsmorgun síðan ræðst dagskrá eftir fjölda sveita Reykjanes á rétt á 4 sveitum inn á íslandsmót Sama gamla góða verðið 24.

mánudagur, 19. febrúar 2018

Jafnt á toppnum í Hafnarfirði

Guðbrandur og Friðþjófur og Indriði og Pálmi skoruðu mest í Hafnarfirði í kvöld, reyndar jafnmikið upp á punkt og prik en þeir fyrrnefndu unnu innbyrðis viðureign.

föstudagur, 16. febrúar 2018

Pianola Íslandsmeistarar

Svein Pianolu eru íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna 2018 í sveitinni spiluðu Arngunnur Jónsdóttir, Rosemary Shaw Harpa F. Ingólfsdóttir og Sigþrúður Blöndal þær voru með 120,21 stig 2. sætið fékk sveitin Ljósbrá með  110,50 3.

föstudagur, 16. febrúar 2018

Vetrarleikarnir í Monte Carlo 17-23.feb.

Einn íslenskur spilari er að keppa á leikonum í ár, það er Sveinn Rúnar Eiríksson og verður hægt að fylgjast með honum á Heimasíða mótsins Hann spila með í Letneskri sveit

miðvikudagur, 31. janúar 2018

Rangæingar -- Kerfinu breytt til bóta

Nú höfum við Rangæingar lokið við 4 umferðir af 7 í sveitakeppni félagsins og keppnin því rúmlega hálfnuð. Toppsveitirnar áttust við í gærkvöldi.

miðvikudagur, 31. janúar 2018

Kvennalið á EM í júní

Landsliðnefnd hefur ákveðið að eftirtaldar skipi landslið kvenna sem keppir  fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramótinu í Belgíu í júní 2018:                                    Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, María Haraldsdóttir, Stefanía Sigurbjörnsdóttir, Anna Guðlaug Nielsen og Helga Sturlaugsdóttir,                          -þjálfari og fyrirliði er Hermann Friðriksson.

mánudagur, 29. janúar 2018

AÐALTVÍMENNINGUR BK BYRJAR 01. FEBRÚAR

Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hefst fimmtudaginn 01. febrúar kl. 19:00 Berst væri að sem allra flestir myndu skrá sig fyrirfram en þó verður opið fyrir skráningu til kl.

sunnudagur, 28. janúar 2018

Svíarnir sigra Bridgehátíð í ár

Svíarnir sigra bæði tímenning og sveitakeppni. Svía-sveitin með þeim Simon Hult og Simon Ekenberg sem sigruðu tvímenning hátíðarinnar ásamt þeim Peter Fredin og Johan Silvan með 145,57 2.

föstudagur, 26. janúar 2018

Reykjavíkbridgefestival 2018

Svíarnir Simon Hult og Simon Ekenberg sigra tvímenning hátíðarinnar með 59,4 % skor, í öðru sæti var Júlíus Sigurjónsson með enska félaga sínum Daviid Gold með 58,2 % Sveitakeppni hefst kl.

fimmtudagur, 25. janúar 2018

Reykjavíkbridgefestival

Jafet Ólafsson, forsesti Bridgesambandsins setti hátíðina nú fyrir stundu  í Hörpu 126 pör spila tvímenning og verður hægt að fylgjast með framvindu paranna hér fyrir neðan, við spilum 8 umferðir í kvöld eða 32 spil Running score for pairs Synt er frá borði 1 á BBO Fréttir á Stöð2 BSÍ biðst velvirðingar á að ekki HEFUR verið hægt að nota www.

miðvikudagur, 24. janúar 2018

Rangæingar -- Saxinu beitt

Sl. þriðjudag var leikin 3ja umferð í sveitakeppninni. Krúttmolarnir í Bangsímon tóku loks til verka og fyrir valinu varð Morgan Kane.  Morgan Kane er sjálfsagt farinn að eldast og orðinn hægur með byssuna, alla vega kom hann engum skotum á Bangsímon sem fór af hólmi með rúm 18 stig en Kane ran af hólmi með tæp tvö stig á milli lappanna.

miðvikudagur, 24. janúar 2018

Stjórnarfunur 7.jan. 2018

Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands 7. janúar, 2018 kl. 17.00 Mættir: Jafet, Ólöf,  Guðný, Árni Már og Ingimundur, Ingibjörg og Anna.

föstudagur, 19. janúar 2018

Briddsfélag Selfoss

Janúarbutlerinn heldur áfram og eftir tvö kvöld af þremur eru Kristján og Þröstur efstir. Ekki verður spilað næstkomandi fimmtudag vegna briddshátíðar og verður því næsta spilakvöld fimmtudaginn 1. febrúar.

fimmtudagur, 18. janúar 2018

Bernódus og Ingvaldur unnu Monradtvímenning BK

Þriðja og síðasta kvöldið í Monradtvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson náðu besta skori kvöldsins með 61,2% en Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson sigruðu samanlagt með 175,1 stig sem er samanlögð prósentuskor úr kvöldunum þremur.