Skráning á Reykjavik Bridgefestival 16 liða úrslit í bikar Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir

þriðjudagur, 25. september 2012

Bridgefélag Selfoss: Aðalfundur og spil 28. sept.

Nú fer starfsemi Bridgefélags Selfoss í vetur senn að hefjast. Boðað hefur verið til Aðalfundar í Tryggvaskála föstudaginn 28. september nk. kl.

þriðjudagur, 25. september 2012

Fyrirlestur BR í kvöld

Þá er komið að fyrsta fyrirlestri vetrarins.  Sveinn Rúnar Eiríksson ætlar að mæta og ræða við okkur um Ólympíumótið í sumar.  Val landsliðsins, undirbúning, mótið sjálft og síðan verða umræður.

föstudagur, 21. september 2012

Föstudagsdeildin fellur niður

Fyrirhuguð keppni í Föstudagsdeildinni sem átti að hefjast í kvöld fellur niður vegna þátttökuleysis. Kveðja, Stórn BR.

fimmtudagur, 20. september 2012

Gísli og Leifur byrja Hausttvímenninginn vel

Fyrsta kvöldið af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Spilað var á 11 borðum og urðu Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson hlutskarpastir en staða efstu para er mjög jöfn.

miðvikudagur, 19. september 2012

Auglýst eftir áhugasömum pörum til landsliðsæfinga

  Í maí 2013 fer fram Norðurlandamót í bridge nú haldið á Íslandi. Til undirbúnings þessu móti mun Bridgesambandið standa fyrir æfingum fyrir hugsanleg landsliðspör.

laugardagur, 15. september 2012

Lokamót Sumarbridge: Gísli og Runólfur sigurvegarar!!

Gísli Steingrímsson og Runólfur Jónsson unnu lokamót Sumarbridge 2012. Þeir enduðu með 61,3% skor og fengu í verðlaun gjafabréf á tvímenning Bridgehátíðar 2013. Björgvin Már Kristinsson og Sverrir G.

föstudagur, 14. september 2012

Stjórnarfundur 13.sept 2012

8.fundur í stjórn Bridgesambandi Íslands haldinn fimmtudaginn 13. sept, 2012 kl. 16.00 Allir voru mættir nema Örvar sem boðaði forföll. 1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt 2. Umræðufundur um bridgemálefni þann 6. sept.

föstudagur, 14. september 2012

Stjórnarfundur 20.ágúst 2012

7. fundur í stjórn BSÍ haldinn mánudaginn 20. Ágúst kl. 16.00 Mætt: Jafet Ólafsson, Árni Már Björnsson, Garðar Garðarsson, Guðný Guðjóndóttir, Örvar Óskarsson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Jörundur boðaði forföll, staddur út á landi.

miðvikudagur, 12. september 2012

Silfurstigamót laugardaginn 15.sept

Lokamót Sumarbridge fer fram laugardaginn 15.sept og hefst kl. 13:00 Spilaðar verða 11 umferðir, 4 spil á milli para og veitt verða silfurstig. Keppnisgjald er 1500 kr á spilara og verða verðlaun fyrir 5 efstu sætin.

mánudagur, 10. september 2012

Bikarmeistarar 2012

�eir f�lagar � sveit Karls Sigurhjartarsonar n�ldu s�r i Bikarmeistartitilinn 2012� eftir sigur � sveit Gunnlaugs S�varssonar 217-118 Vi� �skum �eim til hamingju me� sigurinn ��kkum �llum �eim sem t�ku ��tt � bikarkepnninni � sumar fyrir samveruna.

sunnudagur, 9. september 2012

Lokamót Sumarbridge 2012

Lokamót Sumarbridge 2012 Lokamót Sumarbridge 2012 fer fram laugardaginn 15. september og byrjar kl 13:00. Spilaðar verða 11 umferðir með 4 spilum á milli para.

laugardagur, 8. september 2012

Undanaúrslit-úrslit bikarkeppni BSÍ 2012

Bikarmeistarar 2012 er sveit Karls Sigurhjartarsonar Karl Sigurhjartarson = 217 Gunnlaugur Sævarsson 118 Sveit Karls Sigurhjartar vann sveit Garðs apóteks 118-116 í undanúrslitum Bikarkeppninnar Sveit Gunnlaugs Sævarssonar vann sveit VÍS 135-96 Heimasíða bikarkeppninnar

mánudagur, 3. september 2012

Bikarkeppni BSÍ - Undanúrslit/ úrslit

Undanúrslitum laugardags lauk svo... Karl Sigurhjartarson = 118,  Garðsapótek = 116 Gunnlaugur Sævarsson = 135, VÍS = 96 Karl Sigurhjartarson og Gunnlaugur Sævarsson leika nú til úrslita frá 10-18.

miðvikudagur, 29. ágúst 2012

Sumarbridge: Katrín og Björgvin Már efst með 61%

Katrín Oddsdóttir og Björgvin Már Kristinsson unnu 24 para tvímenning með 61%. Í 2. sæti voru Halldór Svanbergsson og Gísli Steingrímsson og í 3. sæti voru Rosemary Shaw og Páll Þórsson.

miðvikudagur, 29. ágúst 2012

BR byrjar næsta þriðjudag 4. september

Loksins loksins !!!  Spilamennska í BR byrjar næsta þriðjudag og hefst stundvíslega kl. 19:00.  Byrjum á laufléttum eins kvölda tvímenningi og við lofum stórskemmtilegum spilum, erfiðum þrautum, skemmtilegu fólki og yndislegri kvöldstund.

þriðjudagur, 28. ágúst 2012

Frímann og Reynir fá góð spil!

Og hefur það gefið þeim sigur síðustu 2 kvöld í Sumarbridge B.A.  með 62,7% og 70,4% skor.

þriðjudagur, 28. ágúst 2012

Björgvin Már og Sverrir langefstir í Sumarbridge í gær

Spilað var á 11 borðum í Sumarbridge í gærkvöldi og sigruðu Björgvin Már Kristinsson og Sverrir G Kristinsson með yfirburðum, fengu 63,7% en parið í öðru sæti var með 57,7%.

mánudagur, 27. ágúst 2012

Bikarkeppni BSÍ

Síðasti spiladagur 4 umferðar er sunnudagurinn 2.september sjá 4.

miðvikudagur, 22. ágúst 2012

Sumarbridge: Haukur og Helgi efstir af 30 pörum!

Haukur Ingason og Helgi Sigurðsson voru efstir af 30 pörum með 59,3%. Erla og Guðni voru í 2. sæti með 57,2% og í 3. sæti voru Árni Hannesson og Oddur Hannesson með 56,8%.

þriðjudagur, 21. ágúst 2012

Olympíumótið

Svíþjóð - Pólland í úrslitaleik  Hægt er að fylgjast með hér og á BBO