Fréttir
Golf og Bridge-spilagjöf og golf komið inn
Þá er lokið Golf og bridge móti 2011 í frábæri veðri Reiknimeistari Golfsins misreiknaðisig aðeins og bjó til nýja reglu í golfi, sem hann að vísu lofaði að hann skildi aldrei nota aftur :) en hann fékk fékk niðurstöðu sem allir sættu sig við, en þá er fundin út % skor hjá golfurum og bridgerum það lagt saman og deilt með 2 En úrslit í golf og bridge var eftirfarandi 1 sæti Halldór Svanbergsson Valur B.
Sumarbridge og Alheimstvímenningur hjá B.A.
Bridgefélag Akureyrar mun taka þátt í Alheimstvímenning þar sem sömu spil verða spiluð víða um heim á sama tíma. Á Akureyri verður hann spilaður föstudaginn 3.júní kl 19:00 í Skipagötu 14. Keppnisgjald verður 1000kr á mann og með fylgir bæklingur um spilin.
Garðar Garðarsson bronsstigameistari!
Bronsstigameistari á Suðurnesjum er Garðar Garðarsson með 455 bronsstig. Annar varð Gunnlaugur Sævarsson með 329 bronssig og svo komu feðgarnir Dagur og Bjarki með 302 bronsstig.
Árshátíð kvenna 2011
Árshátið kvenna fór fram 21.maí í veislusalnum skútan í Hafnarfirði. Hátíðin hófst kl. 11 með fordrykk og svo var borinn fram dýrindis matur. Spilamennska hófst um 13:30. Sigurvegarar dagsins eru þær Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir með 60,9% skor Dagurinn heppnaðis vel í alla staði og á árshátíðarnefndin hrós skilið fyrir þetta.
Golf-Bridge á Hellu
"Golf-Bridge-mótið verður haldið á Strandarvelli, Hellu, laugardaginn 28.maí nk. Ræst verður á öllum teigum kl 10.oo. Eftir golfið verður matast og síðan briddsað.
Sumarbridge: Ísak og Helgi unnu 2. kvöldið af 2 !
Ísak Örn Sigurðsson og Helgi Sigurðsson eru með 100% árangur í Sumarbridge. Þeir hafa unnið bæði kvöldin sem hefur verið spilað og má búast við þeim fyrnasterkum næsta mánudag.
Sumarbridge: Ísak og Helgi fyrstu sigurvegarar Sumarbridge 2011
Ísak Örn Sigurðsson og Helgi Sigurðsson unnu fyrsta spilakvöld Sumarbridge. Þeir gerðu sér lítið fyrir og skoruðu tæplega 64%. Næsta spilakvöld Sumarbridge er miðvikudagurinn 18. maí.
Þórður og Björn efstir í Kópavogi.
Þórður Jónsson og Björn Jónsson náðu besta skori á fyrra kvöldinu í tveggja kvölda Monrad-barómeter hjá Bridgefélagi Kópavogs í gærkvöldi. Þeir fengu 195 stig eða 58% skor.
Stefán og Örlygur Alfreðsmeistarar hjá B.A.
Stefán Vilhjálmsson og Örlygur Örlygsson unnu impatvímenningin nokkuð örugglega en lokastaðan í heild er hér. Næsta þriðjudag verður eins kvöldstvímenningur en einnig er minnt á 1.maí mótið á Dalvík.
Miðvikudagsklúbburinn: Sigurður og Eiríkur unnu með 60,7%
Feðgarnir Sigurður Kristjánsson og Eiríkur Sigurðsson unnu einskvölds tvímenning miðvikudaginn 27. apríl. Svo er búið að setja inn rétt spil og úrslit frá spilakvöldinu 20. apríl.
Páskatvímenningur Úrslit
Takk fyrir frábært mót, sájumst að ári Hérna má sjá úrslitin
Alfreðsmót B.A. 2.kvöld
Öll úrslit má sjá neðst á þessari síðu
Briddsfélag Selfoss
Þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið í lokamóti Briddsfélags Selfoss eru þeir Björn Snorrason og Guðmundur Gunnarsson efstir. Ekki verður spilað á skírdag, því verður lokakvöldið fimmtudaginn 28. apríl.
Sveinn og Hjálmar sigruðu 3ja kv. Vor-monrad hjá BK
Þriggja kvölda Monradbarómeter lauk hjá Bridgefélagi Kópavogs í gærkvöldi. Sveinn R Þorvaldsson og Hjálmar S Pálsson héldu sýnu striki og sigruðu nokkuð örugglega með 172,8 stig sem er samanlögð prósentuskor úr kvöldunum þremur.
Aðalsveitakeppni BR 2011 er lokið
Aðalsveitakeppni BR 2011. Sparisjóður Siglufjarðar vann með yfirburðum.
Heimir og Árni Már með risaskor í Kópavogi
Fyrsta kvöldið í þriggja kvölda Monrad-barómeter hjá Bridgefélagi Kóopavogs var spilað í gærkvöldi. Formaðurinn og gjaldkerinn voru í banastuði og fengu rúm 67% skor.
Einmenningur tvö hjá B.A.
Annar einmenningur Bridgefélags Akureyrar af þremur var þriðjudaginn 29.mars. Til heildarsigur gilda tvö bestu kvöldin af þremur en hvert kvöld er líka stakt mót svo allir eru velkomnir í hvert sinn.
Meistaratvímenningur byrjar á morgun miðvikudag á Suðurnesjum
Meistaratvímenningur (Aðaltvímenningur) byrjar á Suðurnesjum á morgun miðvikudag. Hvetjum alla til að mæta og taka þátt. Heitt á könnunni og keppnisandinn til staðar.
Bridgehátíð í Þórbergssetri
Bridgehátíð í Þórbergssetri Hin árlega bridgehátíð og hrossakjötsveisla í Þórbergssetri verður helgina 2. - 3. apríl. Allir bridgeáhugamenn eru velkomnir að koma og taka þátt og eta hrossakjöt og njóta dvalar í Suðursveit eina helgi.
Sveit Ingvaldar sigraði Hraðsveitakeppni BK
Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kóopavogs lauk í gærkvöldi með sigri sveitar Ingvaldar sem fékk 2110 stig úr kvöldunum fjórum. Hjálmar og félagar komu skammt á eftir með 2069 stig.