Skráning í bikarkeppnina Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 23. mars 2011

Halldórsmót B.A.

Halldórsmótið var þriggja kvölda sveitakeppni átta sveita með Board-a-Match ívafi. Síðasta kvöldið var gríðarlega spennandi og sveit Frímanns Stefánssonar varð að lúta í gras fyrir sveit Old Boys eftir að hafa leitt fram að lokaumferðinni þar sem Old Boys skaust fram út.

mánudagur, 21. mars 2011

Briddsfélag Selfoss

Sigfinnur Snorrason og Pétur Hartmansson tóku efsta sætið í íslandsbankatvímenningnum þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið. Rétt á eftir þeim koma svo Kristján Már og Helgi Grétar.

sunnudagur, 20. mars 2011

Svæðamót Norðurlands Eystra í tvímenningi

Sigurvegarar komu alla leið frá Sauðárkróki en það voru þeir Ásgrímur og Jón Berndsen en eiginlegir svæðameistarar urðu Dalvíkingarnir Hákon Sigmundsson og Ingvar Jóhannsson.

laugardagur, 26. febrúar 2011

Vesturlandsmót í tvímenningi

Vesturlandsmótið í tvímenningi verður spilað á Hótel Borgarnes laugardaginn 12.mars.  Spilamennskan hefst klukkan 10:00.  Skráning hjá Ingimundi í síma 8615171 eða á zetorinn@visir.

fimmtudagur, 24. febrúar 2011

Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson sigruðu Barómeterinn í Kópavogi

Feðgarnir Eiður Mar Júlíusson og Júlíus Snorrason eru sigurvegarar í Barómeter Bridgefélags Kópavogs. Þeir náðu enn og aftur besta skori kvöldsins, 61%, þegar fjórða og síðasta lota var spiluð í kvöld.

þriðjudagur, 22. febrúar 2011

Jón og Una með risaskor hjá B.A.

Þriðjudaginn 22.febrúar var fyrra kvöldið í Góumóti Bridgefélags Akureyrar sem er barómeter tvímenningur. Jón og Una tóku andstæðinga sína í nefið hvern af öðrum og enduðu með 69,1% skor! Efstu pör urðu: 1. Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir 69,1% 2. Valmar Valjaots - Víðir Jónsson 58,2% 3. Sigfús Aðalsteinsson - Sigfús Hreiðarson 53,6% 4. Hermann Huijbens - Ragnheiður Haraldsdóttir 53,0% 5.

þriðjudagur, 22. febrúar 2011

Bridgefélag Hafnarfjarðar: Enn eykst spennan í Aðalsveitakeppninni!

Sveit Halldórs Svanbergssonar leiðir Aðalsveitakeppni BH 2011 með 4 stiga forskot þegar 2 umferðir eru eftir af keppninni. Sveit Jón Guðmars Jónssonar er í 2. sæti og 1 stigi þar á eftir er sveitin Nammi.

sunnudagur, 20. febrúar 2011

Akureyrarmeistarar í sveitakeppni 2011

Eftir 5 kvölda spilamennsku er ljóst að tryggur sigur er í höfn hjá sveit Guðmundar Halldórssonar í Akureyramótinu í sveitakeppni. Með honum spiluðu Þórólfur Jónasson, Sveinn Aðalgeirsson, Magnús E.

fimmtudagur, 17. febrúar 2011

Hörku spenna í Barómeternum í Kópavogi

Í kvöld var spiluð þriðja lota af fjórum í Barómeter Bridgefélags Kópavogs. Birgir Örn og Ingvaldur náðu 66% skori í kvöld og eru komnir í toppbaráttuna.

fimmtudagur, 17. febrúar 2011

Dagur og Bjarki unnu butlertvímenninginn á suðurnesjum og fá út að borða á Dinnerinn!

Fimmta og síðast kvöldið í Butlertvímenningi á suðurnesjum lauk í gær. Eftir 150 spil þá stóðu Dagur Ingimundarson og Bjarki Dagsson uppi sem sigurvegarar mótsins með 199 impa.

miðvikudagur, 16. febrúar 2011

Miðvikudagsklúbburinn: Þorvaldur og Jón Viðar efstir af 24 pörum!

Miðvikudaginn 16. febrúar var spilaður einskvölds tvímenningur hjá Miðvikudagsklúbbnum. 24 pör mættu til leiks og efstir voru Þorvaldur Pálmason og Jón Viðar Jónmundsson með 60,2% skor.

sunnudagur, 30. janúar 2011

Einmenningur hjá B.A. 1.febrúar

Þriðjudaginn 1.febrúar verður gert stutt hlé á Akureyrarmótinu í sveitakeppni og spilaður einmenningur og eru allir hvattir til að láta sjá sig.

þriðjudagur, 25. janúar 2011

Miðvikudagsklúbburinn spilar á Bridgehátíð!

Miðvikudagsklúbburinn spilar á sama tíma og Stjörnutvímenningurinn á Bridgehátíð 2011. Spiluð verða sömu spil og í Stjörnutvímenningnum og fá sigurvegarar keppnisgjald í tvímenning Bridgehátíðar í verðlaun.

þriðjudagur, 25. janúar 2011

Akureyrarmótið í sveitakeppni

Töluverðar sviftingar urðu í toppbáráttunni á 3.

mánudagur, 24. janúar 2011

BR - Eins kvölds tvímenningur í Síðumúla 37 þriðjudag 25.jan

Spilaður verður eins kvölds tvímenningur í Síðumúla 37 þriðjudaginn 25.

mánudagur, 24. janúar 2011

Eins kvölds tvímenningur miðvikudaginn 26.jan á suðurnesjum

Vegna bridgehátiðar verður eins kvölds tvímenningur miðvikudaginn 26.janúar hjá bridgfélögunum á suðurnesjum. Keppni í butlertvímenningnum heldur svo áfram eftir bridgehátið.

sunnudagur, 23. janúar 2011

Briddsfélag Selfoss

Guðmundur Gunnarssoon og Björn Snorrason náðu forystu í sveitakeppnístvímenning hjá Briddsfélagi Selfoss þegar tvö kvöld af 3 eru búin. Staðan á toppnum er þétt og verður síðasta kvöldið æsispennandi.

laugardagur, 22. janúar 2011

Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2011

Reykjavíkurmeistarar í sveitakeppni 2011 er sveit Sparisjóðs Siglufjarðar, en í þeirri sveit spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Sverrir Ármannsson, Steinar Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni H Einarsson.

fimmtudagur, 20. janúar 2011

Eiður Már og Júlíus unnu þriggja kv. monrad-barómeter í Kópavogi

Feðgarnir Júlíus Snorrason og Eiður Már Júlíusson sigruðu örugglega í þriggja kvölda Monrad-barómeter Bridgefélags Kópavogs. Þeir voru í álíka stuði og Íslaenska Landsliðið í handbolta í gærkvöldi og fengu 63% skor þegar síðasta kvöldið var spilað.

föstudagur, 31. desember 2010

Hótel KEA mót B.A.

Þann 30. desember fór fram hið árlega jóla- og flugeldamót Bridgefélags Akureyrar styrkt af Hótel KEA. Mótið var spennandi allt fram á síðasta spil og það var ekki fyrr en þá sem kom í ljós hverjir færu heim með stærstu terturnar.